MenntaMiðja er samráðsvettvangur um skólastarf sem skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar á aðild að ásamt Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Kennarasambandi Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Samningur um þennan samráðsvettvang var undirritaður 26. janúar og gildir hann til þriggja ára.
MenntaMiðja er nýtt og áhrifaríkt form starfsþróunar fyrir kennara og stjórnendur á öllum skólastigum sem byggir meðal annars á jafningjafræðslu. Mismunandi torg eða gáttir (um ákveðin málefni) eru grunneiningar MenntaMiðjunnar og þar fer fram hið raunverulega starf. Viðfangsefni torganna varða t.d. formlegt og óformlegt nám, kennsluaðferðir, námsefni, símenntun, starfsþróun, upplýsingamiðlun og fleira.
Uppspretta nýrra hugmynda og þekkingar
MenntaMiðja hefur verið starfrækt síðan 2012 við góðan orðstír. Í hverju verkefni er virkjaður hópur fólks sem hefur þekkingu, áhuga og erindi í margbreytilega umræðu um þróun menntunar og skólamála. Tekist hefur að skapa samráðsvettvang á netinu þar sem fólk kemur saman úr ólíkum áttum, svo úr verður suðupottur nýrra hugmynda og þekkingar.
Auk þess hefur verið opinn vettvangur á Twitter um hríð undir heitinu #menntaspjall sem tengist MenntaMiðju. Þar fara fram fjörlegar umræður um skóla- og menntamál á Íslandi undir stjórn sérfræðinga sem stýra umræðum um afmarkað efni.
Nánari upplýsingar á vef MenntaMiðju.