Í dag, á alþjóðlega safnadaginn, var undirritaður samningur um rekstur veitingastaðar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Ólöf K. Sigurðardóttir, og eigendur frú Laugu, Rakel Halldórsdóttir og Arnar Bjarnarson, undirrituðu samning um rekstur veitingastaðar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Matstofa Frú Laugu mun innan skamms bjóða upp á hollan og girnilegan mat í hádeginu, gott ítalskt kaffi og fleira góðgæti. Það er fengur að því fyrir safnið að fá svo metnaðarfullan rekstraraðila til þess að sjá um veitingarekstur í Hafnarhúsinu.