Safna- og sundlauganótt að bresta á

Skóli og frístund

""
Í kvöld kl. 19.00 hefst Safnanótt í tæplega 40 söfnum á Höfuðborgarsvæðinu og stendur til miðnættis. 
Ókeypis verður inn á öll söfn á Safnanótt og boðið upp á spennandi dagskrá. Þá verður Skíða-og snjóbrettapartý á Arnarhóli frá kl. 19-21 í kvöld þar sem færasta skíða- og snjóbrettafólk landsins sýnir listir sínar undir líflegri tónlist plötusnúða. Gestum og gangandi er einnig boðið að koma með bretti eða skíði og renna sér í skíðabrautinni sem er sérstaklega sett upp fyrir þennan viðburð. Þetta er í annað sinn sem Höfuðborgarstofa, Skíðasvæði Höfuðborgarsvæðisins og fyrirtækið Mintsnow halda skíða- og snjóbrettapartý á Arnarhóli en í fyrra var haldið svipað partý sem tókst afar vel. 
 
Sundlauganótt verður svo haldin á morgun, laugardaginn 6. febrúar, en þá bjóða 9 sundlaugar á Höfuðborgarsvæðinu frítt í sund frá klukkan 16 til miðnættis. 
 
Hér að neðan má fræðast nánar um viðburði á Safna- og sundlauganótt: 



Borgarsögusafn - Sjóminjasafn (Grandagarður 8)

Bíó, popp og draugasögur.

Má bjóða þér upp á popp og bíó? Í myrkvuðum Bryggjusal Sjóminjasafnsins verður hin ódauðlega kvikmynd Jaws sýnd.  Sýning safnsins tekur á sig drungalegri blæ en vanalega og leikkonan landskunna Elva Ósk mun lesa þar upp draugasögur kl. 19.00, 20.00 og 21.00. Við mælum með að mæta í fyrsta lestur ef börn eru með í för en seinni tveir lestrar eru ekki jafn sakleysislegir. Í Hornsílinu verður sýnd myndin Dökk ljós eftir Ryan Wood sem sýnir mögnuð norðurljós yfir Íslandi. Þar geta fjölskyldur einnig átt notalega stund, sest niður og föndrað saman grímur eftir eigin höfði. Í varðskipinu Óðni verður svo hægt að fara í ratleit þar sem leitað verður að mjög raunverulegu líki!
 
Listasafn ASÍ (Freyjugata 41)

Netadróg

Í tilefni af opnun einkasýningar Huldu Rósar Guðnadóttur í Ásmundarsal  Listasafns ASI munu löndunarmenn úr Reykjavíkurhöfn flytja gjörning  á Safnanótt sem ná mun frá höfninni og í gegnum miðbæinn alla leið upp á hæðina og inni safnið. Þeir verða áberandi í vinnugöllunum sínum og gestum Safnanætur er boðið að fylgja löndunarmönnum frá Grandabryggju þar sem þeir byrja klukkan 19 og upp í safn. Undir vaskri verkstjórn Sigga verkstjóra og Svavars eiganda Löndunar ehf mun stór hópur löndunarmanna ganga með tæplega eins tonna þungt net frá bakkanum upp í Listasafn ASÍ og koma því þar fyrir sem fundnum skúlptúr af sjávarbotni.
 
Leikminjasafn Íslands (Iðnó, Vonarstræti 3)

Á safnanótt ætla Sviðslistakonur 50+ og aðrir velunnarar safnsins að vekja upp leikhúsdrauganna í Iðnó og segja frá ýmsu sem gerst hefur í þessu 119 ára leikhúsi í gegnum tíðina. Sögumaður er Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og aðrir þáttakaendur eru Edda Björgvinsdóttir leikkona, Alexandra Chernyshova sópransöngkona í leikstjórn Þórunnar Magneu Magnúsdóttur.

Sýning kl.19.30-20.30 og 21.30 
 
Þjóðskjalasafn Íslands (Laugavegur 162)

Er flakkari í fjölskyldunni? Ættfræðigrúsk og fjölskyldusaga.

Leitaðu að forfeðrunum með aðstoð sérfræðinga Þjóðskjalasafns. Við leiðbeinum um heimildir um ættfræði og fjölskyldusögu og um leitarmöguleika í skjalaskrám og á vefsíðum Þjóðskjalasafns Íslands. Vasaljósaferð í geymslurnar kl: 19.00, 19.30 og 22.30. Skjalageymslur Þjóðskjalasafns geyma 45km af skjölum. Geymslurnar eru stórar og dimmar og þar eru mörg leyndarmál.

 


Spennandi viðburðir  – Sundlauganótt 2016
 
Árbæjarlaug

List án landamæra færir sundlaugargestum ljóð eftir íslensk samtímaljóðskáld. Skjólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur nokkur létt lög undir stjórn Snorra Heimissonar. Sunddeild Ármanns kennir skriðsund og býður upp á sundlaugapóló. Svæðið verður lýst upp með kyndlum.


Laugardalslaug

Lyftingadeild Ármanns og Karatefélag Reykjavíkur verða með opið hús. Bátar í innilaug til að prófa undir leiðsögn Kayakklúbbs Reykjavíkur. Ljóðasýning, kyndlar og tónlist. Skólahljómsveit Austurbæjar og hljómsveitin KARMA BRIGADE halda uppi stemningu.
 
Sundhöll Reykjavíkur

Selma Reynisdóttir og Hrefna Björg Gylfadóttir verða með ljósa- og hljóðinnsetningu í klefum karla og kvenna

 
Vesturbæjarlaug

Kvennakórinn Katla túlkar tilfinninguna sem það er að þræða bjartdimman gang sólarinnar í þriggja klukkustunda gjörning. Verkefið er eftir listakonuna Ragnheiði Hörpu & Kötlurnar. Í gufubaðinu verða láréttir sólstafir sem lýsa upp agnir vatnsdropa.
 
Klébergslaug

Ýmsir viðburðir í boði fyrir alla fjölskylduna í samvinnu við UMFK.