Ruslið burt

Umhverfi Skóli og frístund

""
Viðburðurinn „Ruslið burt“, sem er keppni í ruslatínslu,  var haldinn í liðinni viku í þremur grunnskólum í Reykjavík: Brúarskóla, Réttarholtsskóla og Vesturbæjarskóla, en nemendur hreinsuðu rusl í nágrenni sinna skóla. 
 
Fjórir nemendur í viðburða- og verkefnastjórnun við Háskóla Íslands skipulögðu viðburðinn, sem  hefur það að markmiði að auka umhverfisvitund barna og unglinga. Hverfisstöð umhverfis- og skipulagssviðs sá svo um að  safna saman pokunum sem fylltir höfðu verið og hélt til haga hve mikið safnaðist við hvern skóla.
 
Skipuleggjendur ætla á föstudag að mæta með verðlaunagrip í þann skóla sem mestu safnaði. Verkefnastjórar Ruslið burt, þær Ástrún Sæland, Dóra Sveinsdóttir, Dröfn Jónsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir, segja að viðburðurinn gæti orðið árviss meðal grunnskóla í Reykjavík.  Ingibjörg segir að krakkarnir hafi verið ánægð með að komast út úr kennslustofunum, enda veður gott þegar átakið stóð yfir.