Rokk og ról á Voga Grease

Skóli og frístund

""
Nemendur á unglingastigi í Vogaskóla hafa sett upp söngleikinn Grease og verður hann frumsýndur síðdegis. 
 
Nemendur hafa í vetur unnið að uppfærslunni í svokölluðum samtímum með verk- og listgreinakennurum. Mikið er lagt í sýninguna, í tónlist, dans og sviðsmynd og ríkir mikil eftirvænting fyrir frumsýninguna. Þá hafa nemendur útbúið margvíslegan fróðleik um söngleikinn og sögu unglingamenningarinnar sem varð til á 6. áratugnum með rokki og róli. 
 
Aðalleikarar í sýningunni eru þau Atli Geir Alfreðsson (Danni) og Sigríður Halla Eiríksdóttir (Sandí). 
Leikstjórar eru Guðrún Heiða Sigurgeirsdóttir og Bergdís Júlía Jóhannsdóttir kennarar í Vogaskóla.

Gísli Rúnar Jónsson þýddi verkið á íslensku og staðfærði. Sýningara verða mánudaginn 2. maí  og þriðjudag 3. maí og hefjast kl. 18.  Sýningarnar eru öllum opnar. 
 
Söngleikurinn Grease var frumfluttur árið 1971 og er nafnið sótt í unglingaklíkur á 6. áratugnum, Greasers. Samnefnd kvikmynd með þau John Travolta og Oliviu Newton-John í aðalhlutverkum sló í gegn á áttunda áratugnum.