Rimaskóli sigurvegari á Grunnskólamótinu í frjálsum 2016

Skóli og frístund

""
Nemendur í 6. – 9. bekk Rimaskóla komu sáu og sigruðu í öllum þeim fjórum árgöngum sem keppt var í á Grunnskólamótinu í frjálsum 2016. Mótið var haldið í Laugardalshöll fyrstu daga septembermánaðar. Keppt var í 60 m og 600 m hlaupi, kúluvarpi og langstökki.
Sjötíu nemendur Rimaskóla fjölmenntu í Höllina og sigruðu örugglega í öllum árgöngum. Af þeim 16 flokkum sem keppt var í hrepptu nemendur Rimaskóla átta gullverðlaun, fjögur silfurverðlaun og fimm bronsverðlaun. Mikil verðlaunahátíð var haldin í sal Rimaskóla þar sem ólympíufararnir og frjálsíþróttastjörnurnar Aníta Hinriksdóttir og Guðni Valur Guðnason mættu í skólann og afhentu sigurvegurunum glæsilega verðlaunagripi. Það var Frjálsíþróttaráð Reykjavíkur sem sá um framkvæmd mótsins í samstarfi við frjálsíþróttadeildir Ármanns, Fjölnis og ÍR.