Hátt í 150 börn settust að tafli um nýliðna helgi og tefldu í 33 skáksveitum á jólamóti grunnskóla borgarinnar á vegum Taflfélags Reykjavíkur og SFS. Andrúmsloftið í félagsheimili TR einkenndist af leikgleði og keppnishörku.
Yngri flokkur reið á vaðið á sunnudagsmorgni er suður-riðill 1.-7.bekkjar tefldi með sigursveit Ölduselsskóla frá því í fyrra . Einungis ein stúlknasveit var mætt til leiks, sveit Háteigsskóla, en stúlkurnar hafa verið einkar duglegar að sækja skákæfingar hjá Taflfélagi Reykjavíkur undanfarin misseri. Svo fór að Ölduselsskóli vann öruggan sigur með 21 vinning af 24 mögulegum. Baráttan um 2.sætið var hnífjöfn en það hreppti Breiðholtsskóli með 14,5 vinning, aðeins hálfum vinning meira en Háteigsskóli sem endaði í 3.sæti. Það voru því Ölduselsskóli og Breiðholtsskóli sem tryggðu sér þátttökurétt í úrslitakeppni mótsins. Stúlknasveit Háteigsskóla fékk 10,5 vinning í 6.sæti og komst áfram í úrslitakeppni stúlknasveita.
Stúlknasveit Háteigsskóla teflir gegn Háaleitisskóla.
Norður-riðill yngri flokks hóf keppni síðdegis sama dag. Hvorki fleiri né færri en 19 skáksveitir voru mættar til leiks. Rimaskóli, þótti sigurstranglegur í þessum riðli en Ingunnarskóli gaf þó ekkert eftir í toppbaráttunni og fylgdi Rimaskóla eftir sem skugginn allt mótið. Að lokum munaði aðeins einum vinningi á skólunum tveimur. Rimaskóli vann riðilinn og Ingunnarskóli lenti í 2.sæti, og öðluðust skólarnir tveir því keppnisrétt í úrslitakeppninni. B-sveit Rimaskóla hreppti loks 3.sætið. Rimaskóli lét ekki þar við sitja því stúlknasveit skólans varð hlutskörpust í stúlknaflokki og hlaut sveitin 11 vinninga. Stúlknasveit Landakotsskóla kom í humátt á eftir með 10,5 vinning. Í 3.sæti varð sveit Árbæjarskóla með 9,5 vinning. Þar sem aðeins ein stúlknasveit var í fyrri riðli mótsins þá komust þrjár efstu stúlknasveitir Norður-riðils áfram í úrslitakeppnina.
Ölduselsskóli vann annað árið í röð í yngri flokki
Úrslitakeppni yngri flokks var stórskemmtileg. Ölduselsskóli gaf ekkert eftir og vann allar sínar viðureignir utan eina sem var jafntefli gegn Rimaskóla í síðustu umferð. Ölduselsskóli vann því sannfærandi sigur með 18 vinninga í 24 skákum. Rimaskóli og Ingunnarskóli háðu mikla baráttu um 2.sætið, líkt og í riðlakeppninni deginum áður, og náði sú barátta hámarki í 4.umferð er Ingunnarskóli lagði Rimaskóla 2,5-1,5. Rimaskóli spýtti þá í lófana og tryggði sér 2.sætið með jafntefli gegn sigursveit Ölduselsskóla. Rimaskóli fékk 14,5 vinning og Ingunnarskóli hlaut 13 vinninga í 3.sæti. Breiðholtsskóli rak lestina með 2,5 vinning en getur engu að síður borið höfuðið hátt því sveitin kom öllum á óvart með því að tryggja sér sæti í úrslitum í sínu fyrsta móti.
Sigursveit Rimaskóla í stúlknaflokki
Úrslitakeppni stúlknaflokks hjá 1.-7.bekk var æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu skák síðustu umferðar. Rimaskóli og Háteigsskóli glímdu um efsta sætið og virtist Rimaskóli hafa pálmann í höndunum eftir sigur á helsta keppinaut sínum í 4.umferð, 3-1. Háteigsskóli lét þó ekki deigan síga og vann síðustu tvær viðureignir sínar 4-0. Rimaskóli lenti þá í klóm hinnar efnilegu skáksveitar Landakotsskóla. Í stöðunni 2-1 fyrir Rimaskóla fór af stað ævintýralega atburðarás á 1.borði þar sem Rimaskóli þurfti jafntefli til að tryggja sér sigur í mótinu. Eftir mikinn barning þar sem skákin skipti um eiganda í nokkur skipti -og fjölmargir áhorfendur tóku ítrekuð andköf- þá þráléku stúlkurnar og Rimaskóli hrósaði sigri í mótinu. Rimaskólastúlkur fengu 19,5 vinning í efsta sæti og Háteigsskóli hlaut 19 vinninga í 2.sæti. Landakotsstúlkur enduðu í 3.sæti og Árbæjarskóli í 4.sæti.
Stúlknasveit Hagaskóla hreppti 3.sætið í eldri flokki og var jafnframt eina stúlknasveitin
Eldri flokkur (1.-8.bekkur) tefldi á sama tíma og úrslitakeppni yngri flokks fór fram. Þátttaka í eldri flokki var afar döpur að þessu sinni en aðeins 6 skáksveitir tefldu. Fyrir vikið þurftu mótshaldarar að fækka fyrirhuguðum umferðum úr sex í fimm. Laugalækjarskóli mætti með mjög sterka skáksveit líkt og árið á undan er skólinn vann með fullu húsi. Laugalækjarskóli endurtók leikinn og vann allar 20 skákir sínar. Rimaskóli hreppti 2.sætið með 14 vinninga. Stúlknasveit Hagaskóla –eina stúlknasveit eldri flokks- gerði sér svo lítið fyrir og fékk 8 vinninga sem dugði í 3.sætið.
Laugalækjarskóli vann eldri flokk annað árið í röð með fullu húsi.
Sé litið til mótsins í heild þá sést að Rimaskóli stendur öðrum skólum Reykjavíkur framar í skólaskák. Skólinn hreppti alls fimm verðlaun; 2 gull, 2 silfur og 1 brons. Skólinn sendi 5 skáksveitir í mótið, flestar allra skóla.