Reykvískir kennarar fá viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf

Skóli og frístund Mannlíf

""
Nichole Leigh Mosty sem hefur stýrt leikskólanum Ösp í Breiðholti af mikilli fagmennsku og Ásthidur Kjartansdóttir kennari í Breiðagerðisskóla þykja afburða kennarar. 
Nichole Leigh Mosty er auk þess að vera leikskólastjóri í Ösk formaður í hverfisráði Breiðholts og brennur fyrir mörgum málefnum, s.s. gildi fjölmenningar. Ásthildur Kjartansdóttir starfaði um árabil í Breiðagerðisskóla og kenndi lengst af yngri börnum og börnum á miðstigi. Menntavísindasvið HÍ veitti þeim viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands. Aðrir sem fengu viðurkenningu voru Hildur Hauksdóttir, Menntaskólanum á Akureyri, Þorgerður Ingólfsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð og Örn Arnarson, Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. 
 
Verðlaunin eru afrakstur kynningarátaksins „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is. Sögum þjóðþekktra einstaklinga var safnað á vef átaksins og í stuttum myndböndum sögðu þeir frá kennurum sem hafa haft áhrif á þá. Tilgangur átaksins var að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhuga-vert og skemmtilegt það er og hversu mikil áhrif kennarar hafa á einstaklinga og samfélagið.


Viðtökurnar voru afar góðar en um 350 kennarar á öllum skólastigum voru tilnefndir af nærri 800 hundruð manns. 
Í tilnefningu um Nichole Leigh Mosty sagði m.a. 

 
„Nichole kenndi mér íslensku, að vera alltaf glöð og að ég gæti gert allt sem ég vildi. Hún var afar áhrifamikill stjórnandi og leitaði sífellt nýrra og fjölbreyttra leiða til að þróa leikskólastarf fyrir fjölmenningarlegan barna- og foreldrahóp. Hún horfði mikið til þess sem var að gerast erlendis, var örugg og hugrökk. Hreint út sagt algjör frumkvöðull!“
 
Í tilnefningu um Ásthildi Kjartansdótttur í Breiðagerðisskóla sagði: „Hún skapaði okkur krökkunum öruggt og notalegt umhverfi frá fyrsta degi. Aldrei skipti hún skapi svo ég muni, kom fram við alla sína nemendur af skilningi og virðingu. Ásthildur hvatti okkur til dáða, studdi okkur og efldi í námi og sýndi hverjum og einum nemanda áhuga og alúð. Hún kveikti námsáhuga og metnað og mótaði framtíð mína á vissan hátt þegar hún sagði við mig sjö ára gamla að ég gæti orðið góður kennari. Þessi orð sátu fast í mér og ég var ákveðin í að verða kennari. Hún var yndislegur og ógleymanlegur kennari sem hafði sannarlega mótandi áhrif á mitt líf.“
 
Til hamingju Nichole og Ásthildur með þessa viðurkenningu!