Reykvísk börn stóðu sig vel í PISA

Skóli og frístund

""

Reykvískir nemendur ofar landsmeðaltali í öllum þremur greinum; læsi í náttúrufræði, stærðfræði og lesskilningi. 

Reykjavík er ofar meðaltali hér á landi í læsi á náttúrufræði samkvæmt síðustu PISA-könnun með 476 stig en meðaltal Íslands er 473 stig.  Sé litið til hæfnisþrepa eru 5,4% nemenda í Reykjavík á tveimur efstu hæfnisþrepum í náttúrufræði á móti 4,3 % á landinu öllu.

Ekki er marktækur munur á læsi á stærðfræði nú og í fyrri könnun, er 497 stig. Reykjavík er sem fyrr ofar meðaltali Íslands og meðaltali OECD sem er 490 stig.  Sé litið til hæfnisþrepa eru 15% nemenda í Reykjavík á tveimur efstu hæfnisþrepum í stærðfræði á móti 10% á landinu öllu og 10% í OECD.

Lesskilningur stendur nærri í stað í Reykjavík frá seinasta prófi.  Reykjavík er ofar meðaltali Íslands sem er 482 stig.Sé litið til hæfnisþrepa eru 9,4% nemenda í Reykjavík á tveimur efstu hæfnisþrepum í lesskilningi á móti 6,8% á landinu öllu og 8,1% í OECD.

Niðurstöður PISA sýna því nánast óbreytta stöðu reykvískra nemenda frá árinu 2012 og sem fyrr gott gengi nemenda á efstu hæfnisþrepum.  Þá er vert að horfa til þess að PISA er einn af mörgum mælikvörðum á gæði skólastarfs, en mælingar í Reykjavík til margra ára sýna m.a. að nemendum líður vel í skólanum sínum, eru ánægðir með kennarana sína og fá rík tækifæri til að taka þátt í skapandi skólastarfi.  

Frá því að PISA könnunin var gerð hefur verið blásið til sóknar í því að bæta málskilning og læsi reykvískra barna og ungmenna. Sett hefur verið á laggir Miðja máls á læsis sem veitir starfsfólki, leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva ráðgjöf við að efla læsi á öllum stigum. Þá hefur verið lagt viðbótarfjármagn í aðgerðir til að efla læsi sem umbótaþátt í skóla- og frístundastarfinu .

PISA-niðurstöðurnar eru viðmið sem vert er að horfa til þegar stefnumótandi ákvarðanir í menntamálum eru teknar. Þær eru tækifæri til að líta til þess sem vel er gert í hverju landi og þar er eðlilegt að stefna sem hæst. Með markvissum prófaaðgerum má hins vegar ná enn betri árangri líkt og dæmin sýndu á árinu 2009, þegar átak var gert í því að vekja áhuga reykvískra nemenda á PISA-prófunum og ná þar fram sem allrabestum árangri.