Reykjavíkurleikarnir 2016

Mannlíf Íþróttir og útivist

""
Reykjavíkurleikarnir fara nú fram í Laugardalnum. Þetta er í 9.sinn sem leikarnir fara fram en það er Reykjavíkur í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélögin í Reykjavík ásamt dyggum samstarfsaðilum sem standa að leikunum. Helstu samstarfsaðilar leikanna eru Síminn, Mjólkursamsalan, Icelandair og AVIS bílaleiga.





 
Reiknað er með að rúmlega fimm hundruð erlendir gestir komi á Reykjavíkurleikana í ár ásamt um 2.000 íslenskum íþróttamönnum. Keppendur sem nú eru skráðir til þátttöku koma frá 39 mismunandi löndum. Enn er verið að taka á móti skráningum í sumum greinum og því gæti fjölgað eitthvað í hópi erlendra gesta á næstu dögum. Flestir erlendu keppendanna taka þátt í badminton, um 150 manns, og næst flestir í sundi, um 80 manns. 



Reykjavíkurleikarnir eru mikil íþróttahátíð þar sem keppt er í 21 einstaklingsíþróttagrein. Flestir mótshlutarnir fara fram í Laugardalnum og nágrenni hans. Keppnin skiptist niður á tvær mótshelgar en einnig er ráðstefna um afreksíþróttir hluti af dagskránni. Á heimasíðu leikanna má finna lista yfir íþróttagreinar og dagskrá. 
 
Margt af besta íþróttafólki okkar Íslendinga verður á meðal þátttakenda. Má þar nefna sundkonuna og Íþróttamanna ársins 2015 Eygló Ósk Gústafsdóttur, frjálsíþróttakonuna Anítu Hinriksdóttur, dansparið Hönnu Rún Óladóttur og Nikita Basev. Þá taka Ólympíufararnir Þormóður Jónsson júdókappi og Ásgeir Sigurgeirsson skotíþróttamaður líka þátt.
 
Einnig eru margir mjög sterkir erlendir keppendur væntanlegir til landsins vegna leikanna í ýmsum greinum. Heimsmeistarar í kraftlyftingum kvenna, Kimberly Walford og Bonica Lough frá Bandaríkjunum, Dwain Chambers sem er fyrrum Heims- og Evrópumeistari í spretthlaupi, Mie Østergaard Nielsen Evrópu- og Heimsmeistari sundi og Alizee Agier, Heims og Evrópumeistari í karate. Einnig eru mjög sterkir erlendir keppendur í badminton, listhlaupi á skautum, júdó, keilu, taekwondo og Ólympískum lyftingum.
 
RÚV verður með ellefu útsendingar og samantektarþætti um leikana.