Reykjavíkurborg styður Fund fólksins

Mannlíf Mannréttindi

""
Reykjavíkurborg hefur gert samning við Almannaheill – Samtök þriðja geirans um að veita félaginu fjárstuðning til að standa fyrir lýðræðishátíð að norrænni fyrirmynd undir yfirskriftinni Fundur fólksins.
Samingurinn sem er til tveggja ára var undirritaður af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Katli Berg Magnússyni, stjórnarformanni Almannaheilla.
 
Fundur fólksins var haldinn í fyrsta skipti hér á landi í júní í fyrra. Framkvæmdin var í höndum Norræna hússins sem skapaði fundinum umgjörð með þátttöku 40 félagasamtaka sem stóðu fyrir yfir 150 dagskrárliðum. Fundurinn var haldinn í anda sambærilegra viðburða sem hafa fest sig í sessi á hinum Norðurlöndunum undanfarin ár, svo sem Almendalsveckan á Gotlandi í Svíþjóð, Folkemødet á Bornholm í Danmörku og Arendalsuka í Noregi.
 
Samkvæmt samingnum  er stefnt að því að Fundur fólksins verði árlegur viðburður þar sem vettvangur skapast fyrir umræður og skoðanaskipti á breiðum grundvelli með aðkomu allra mögulegra aðila sem vilja hafa áhrif á samfélagið og þróun þess til góðs. Félagið Almannaheill mun annast skipulag fundarins og fær samkvæmt samningnum tveggja milljóna króna fjárframlag á þessu ári og sömu fjárhæð árið 2017 til stuðnings framkvæmdinni.