Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í gær.
Átta skólar stigu á stokk með frumsamin atriði; Kelduskóli, Háaleitisskóli, Háteigsskóli, Seljaskóli, Dalskóli, Hlíðaskóli, Réttarholtsskóli og Rimaskóli. Skólarnir sem komust áfram voru Réttarholtsskóli og Hlíðaskóli og keppa þeir til úrslita 14. nóvember ásamt sjö öðrum skólum.
Borgarleikhúsið var þétt setið unglingum úr 8., 9. og 10. bekk á fyrsta undanúrslitakvöldinu og studdu þeir sína skóla vel áfram. Alls taka 24 skólar þátt í Skrekk að þessu sinni. Úrslitakvöldinu 14. nóvember verður sjónvarpað beint á RÚV og hefst útsending kl. 20.00.
Meira um Skrekk