Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag að rekstri leikskólans Mýrar í Litla Skerjafirði verði hætt frá og með 15. júlí á næsta ári.
Áður hafði rekstur leikskólans tímabundið verið sameinaður undir eina yfirstjórn með leikskólanum Hagaborg og tók sú sameining gildi nú í haust. Ástæður sameiningar voru fækkun barna í Vesturbæ og breytingar á yfirstjórn Mýrar. Þá þóttu faglegar og rekstrarlegar forsendur ekki nægilega sterkar fyrir áframhaldandi rekstri leikskólans; húsið nýtast illa, börnin fá og starfshópur fámennur.
Foreldrar leikskólabarnanna í Mýri fá samkvæmt samþykkt ráðsins forgang fyrir börn sín inn í aðra leikskóla Reykjavíkurborgar en það eru um 20 börn. Þá fá starfsmenn Mýrar aðstoð við að finna sambærileg störf. Samráðshópur skipaður fulltrúum stjórnenda á Mýri, foreldrum og fulltrúum skrifstofu skóla- og frístundasviðs mun skipuleggja flutning barna, lokun skólans og skil á húsnæði.
Tillögu um að rekstri leikskólans yrði hætt var í haust vísað til umsagnar foreldraráðs og starfsfólks og var lokun skólans frestað til næsta árs til að koma til móts við óskir sem fram komu í því ferli.
Samþykkt skóla- og frístundaráðs krefst staðfestingar borgarráðs.