Óskar Guðmundsson hlaut Blóðdropann fyrir sína fyrstu skáldsögu, Hilmu. Blóðdropinn er veittur þeim höfundi sem ritaði bestu íslensku glæpasöguna á árinu sem leið en hann var fyrst veittur árið 2007.
Skáldsaga Óskars verður framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna.
Í umsögn dómnefndar um Hilmu segir að persónur sögunnar séu fjölbreytilegar og lesandanum finnist jafnvel sem hann hafi mætt þeim á götum Reykjavíkur. Sagan er óvenjuleg að því leiti að lesandinn fylgist með hugsunum og gjörðum morðingjans. Að mati dómnefndar dregur höfundur lesandann inn í umhverfi sögunnar á skýran og greinargóðan hátt.
Í dómnefnd að þessu sinni sátu Úlfar Snær Arnarsson, Kristján Jóhann Jónsson og Guðrún Ögmundsdóttir.