Orðagull, listin að segja sögu

Skóli og frístund Menning og listir

""
Borgarbókasafnið í Menningarhúsi Spangarinnar verður með námskeið alla miðvikudaga 28. sept. – 16. nóv. frá kl. 17-18.30. Áhersla verður á að blása lifi í sögur af eigin lífi.
 
Öll eigum við okkar sögu. Þær sögur eru fjársjóðir sem margir liggja á eins og ormar á gulli. Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á að blása lífi í sögur af eigin lífi með því að rifja upp eftirminnileg eða áhugaverð atvik í lífi þátttakenda. 
 
Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig gæða má sögurnar lífi og litum svo þær verði athyglisverðar og áheyrilegar – þannig að þær ljómi eins og gull. 
 
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og því lýkur svo með uppskeruhátíð á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember.
 
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni

Nánari upplýsingar veitir:

Ólöf Sverrisdóttir, verkefnastjóri

Netfang: olof.sverrisdottir@reykjavik.is

Sími: 6647718

www.borgarbokasafn.is