Frístundamiðstöðin Miðberg stendur fyrir öflugri og skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna í vetrarfríi grunnskólanna sem verður 25.-26. febrúar. Nóg verður um að vera og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Smellið hér til að skoða dagskrána hjá Miðbergi þessa daga.
Auk dagskrár frístundamiðstöðva borgarinnar fá fullorðnir í fylgd með börnum frítt inn á Kjarvalsstaði, Ásmundarsafn,Hafnarhús, Árbæjarsafn, Landnámssýninguna í Aðalstræti og Sjóminjasafnið. Á mörgum söfnum verður leiðsögn um þær sýningar sem settar hafa verið og boðið upp á leiki sem tengjast þeim. Í Borgarbókasafninu verður boðið upp á skapandi smiðjur, leiki, bingó og víkingaleiki og fl. Þá verða skíðasvæði í borgarlandinu opin og frítt i´sundlaugar á tilteknum tíma.