Nýr skólastjóri við sameinaðan leik-, grunn- og tónlistarskóla á Kjalarnesi
Skóli og frístund
Sigrún Anna Ólafsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri.
Sigrún Anna hefur lokið MA gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ og hefur víðtæka reynslu af skólastarfi. Hún hefur starfað sem umsjónarkennari, náms- og starfsráðgjafi, deildarstjóri og staðgengill skólastjóra við Klébergsskóla.
Sigrún Anna tekur við starfinu 1. september og er boðin velkomin til starfa.