Særún Ármannsdóttir er nýr stjórnandi í leikskólanum Hofi.
Særún Ármannsdóttir útskrifaðist sem leikskólakennari úr Fósturskóla Íslands 1992 og lauk B.Ed. í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands 2008. Hún hefur lokið diplomanámi í menntunar- og kennslufræðum frá Háskóla Íslands.
Særún hefur starfað á Hof frá því að leikskólinn tók til starfa 1996, fyrst sem deildarstjóri og sem aðstoðarleikskólastjóri frá árinu 1997. Þá starfaði hún sem leikskólastjóri við Hof í afleysingum.
Fjórir umsækjendur voru um stöðuna.