Njála með 10 Grímur

Mannlíf Menning og listir

""
Grímuverðlaunin voru afhent í fjórtánda sinn, í gærkvöldi við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu.  Njála sem sýnd er í Borgarleikhúsinu hlaut flest verðlaun eða 10 talsins.
Njála var valin sýning ársins og leikrit ársins ásamt leikstjóra ársins Þorleifi Erni Arnarssyni. Brynhildur Guðjónsdóttir hlaut verðlaun sem leikkona ársins fyrir hlutverk sitt í Njálu og Hilmir Snær Guðnason sem leikari ársins fyrir hlutverk sitt í Hver er hræddur við Virginíu Woolf? Hjörtur Jóhann Jónsson hlaut Grímuna sem leikari í aukahlutverki fyrir Njálu og Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í Auglýsingu ársins. Sproti ársins eru Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors fyrir Flóð. Stefán Baldursson veitti viðtöku heiðursverðlaunum Grímunnar
 
Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hefur veg og vanda að Grímuverðlaununum.
 
Vinningshafar kvöldsins:
 
Sýning ársins 2016 

Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar.


Leikrit ársins 2016   

Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar.



Leikstjóri ársins 2016   

Þorleifur Örn Arnarsson fyrir Njálu.



Leikari ársins 2016 í aðalhlutverki 

Hilmir Snær Guðnason fyrir Hver er hræddur við Virginíu Woolf?
 
Leikkona ársins 2016 í aðalhlutverki 

Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir Njálu 
 
Leikari ársins 2016 í aukahlutverki 

Hjörtur Jóhann Jónsson fyrir
 
Leikkona ársins 2016  í aukahlutverki 

Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Auglýsingu ársins
 
Leikmynd ársins 2016   

Ilmur Stefánsdóttir fyrir Njálu 
 
Búningar ársins 2016   

Sunneva Ása Weisshappel fyrir Njálu
 
Lýsing ársins 2016  

Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Njálu
 
Tónlist ársins 2016   

Árni Heiðar Karlsson og Valdimar Jóhannsson fyrir Njálu
 
Hljóðmynd ársins 2016   

Valdimar Jóhannsson og Baldvin Þór Magnússon fyrir Kafla 2: Og himinninn kristallast í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
 
Söngvari ársins 2016  

Elmar Gilbertsson fyrir Don Giovanni í sviðsetningu Íslensku óperunnar.
 

Dans – og sviðshreyfingar ársins 2016

Erna Ómarsdóttir fyrir Njálu

 
Dansari ársins 2016   

Aðalheiður Halldórsdóttir fyrir Persóna – What a feeling í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
 
Danshöfundur ársins 2016   

Inga Huld Hákonardóttir og Rósa Ómarsdóttir fyrir The Valley í sviðsetningu Menningarfélagsins Tvíeindar, Reykjavik Dance Festival og Tjarnarbíós.
 
Útvarpsverk ársins 2016   

Fylgsnið eftir Hávar Sigurjónsson. Leikstjórn Hilmar Jónsson, framleiðandi Útvarpsleikhúsið á RÚV. 
 
Sproti ársins 2016  

Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors fyrir Flóð í sviðsetningu Borgarleikhússins.
 
Barnasýning ársins 2016  

Vera og vatnið eftir Tinnu Grétarsdóttur, Snædísi Lilju Ingadóttur, Guðnýju Hrund Sigurðardóttur og Sólrúnu Sumarliðadóttur í sviðsetningu Bíbí og blaka.
 
Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands 2016  

Stefán Baldursson.