Í tilefni af komu bandaríska furðusagna- og verðlaunahöfundarins Kij Johnson til landsins stefnir Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO henni saman við tvo íslenska rithöfunda: Sjón og Emil Hjörvar Petersen. Höfundarnir þrír hafa unnið með hið fantasíska hver á sinn hátt en eiga það sameiginlegt að leita mikið í brunn goð- og þjóðsagna.
Ásamt því að lesa úr verkum sínum ræða höfundarnir saman um verkin og um efnivið goðsagna, goðsagnalegar reisur, umbreytingu landslags í frásagnir, um stöðu fantasíunnar og mörk hennar.
Kij Johnson er bandarískur rithöfundur sem vinnur á sviði vísindaskáldsagna, fantasía og tilraunabókmennta. Hún hefur hlotið helstu furðusagnaverðlaun heims: Hugo, Nebula, World Fantasy og Sturgeon. Á meðal bóka hennar eru japönsku fantasíurnar The Fox Woman og Fudoki, og smásagnasafnið At the Mouth of the River of Bees. Hún kennir ritlist og bókmenntir við Háskólann í Kansas. Áður vann hún meðal annars við bókaútgáfu, myndasagnagerð og spilahönnun. Margar af sögum Kij má lesa á heimasíðu hennar: www.kijjohnson.com
Sjón er margrómaður skáldsagnahöfundur. Hann hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókina Skugga-Baldur og fyrir Argóarflísina var hann tilnefndur bæði til International IMPAC Dublin Literary Awards og Independent Foreign Fiction Prize. Fyrir nýjustu skáldsögu sína, Mánastein — Drenginn sem aldrei var til, hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin 2013. Sem ljóðskáld og textahöfundur hefur hann gefið út níu ljóðabækur, skrifað fjóra óperutexta og texta fyrir ýmsa listamenn. Árið 2001 var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir söngtextagerð í kvikmyndinni Dancer In The Dark. Sjón er forseti PEN á Íslandi og hann var fyrsti formaður stjórnar Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO. Skáldsögur hans hafa verið þýddar á þrjátíu og fimm tungumál.
Emil Hjörvar Petersen er skáldsagnahöfundur og einn af frumkvöðlum furðusagnasenunnar á Íslandi. Árið 2008 hlaut hann Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir ljóðabókina Refur. Tveimur árum síðar kom út fyrsta skáldsagan í hinum annálaða þríleik Saga eftirlifenda, sem er yfirgripsmikil póst-apokalyptísk fantasía um æsina sem lifðu af Ragnarök. Árin 2012 og 2014 komu bækur tvö og þrjú út. Emil hefur verið gestahöfundur á fjölda ráðstefna erlendis og á síðasta ári var hann einn af íslensku höfundum á Bókmenntahátíð í Reykjavík. Árið 2014 vann hann með Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO að verkefninu Furður í Reykjavík. Hann hefur gefið út þrjár ljóðabækur og ljóð hans hafa birst á ensku, sænsku, dönsku, þýsku og úkraínsku.
Viðburðurinn fer fram á ensku og er haldinn þann 17. mars kl. 16:30-18:00. Hann fer fram á Kaffislipp á Icelandair Hótel Reykjavík Marina. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.