Myndbönd um skólaráð og nemendafélög

Skóli og frístund

""

SAMFOK, samtök foreldrafélaga í Reykjavík, Umboðsmaður barna og Heimili og skóli hafa gefið út myndbönd um skólaráð og nemendafélög í grunnskólunum. 

Myndböndin voru frumsýnd við hátíðlega viðhöfn í Breiðholtsskóla í vikunni að viðstöddum nemendum unglingastigs skólans og fleiri góðum gestum. 

Miklar breytingar urðu í lýðræðisátt á aðkomu nemenda og foreldra að skólastarfinu með nýjum grunnskólalögum árið 2008 og er myndböndunum ætlað að skerpa á helstu atriðum. Þau eru hugsuð fyrir alla sem koma að skólasamfélaginu og rekstri grunnskólanna. Myndirnar fjalla um hlutverk og ábyrgð þeirra sem sitja í skólaráði og stjórnum nemendafélaga. Fræðslan er sett fram á aðgengilegan og einfaldan máta með léttu ívafi. Stefnt er að því að gera sams konar myndband um hlutverk foreldrafélaga í grunnskólum

Við gerð myndbandanna var litið til ákvæða grunnskólalaga sem gilda um nemendafélög, laga og reglugerðar um skólaráð og síðast en ekki síst Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Myndböndin eru unnin í samvinnu við hreyfimyndagerðina FREYJU og með stuðningi Reykjavíkurborgar.

Hvað er nemendafélag?

Hvað er skólaráð?