Myllan hefur tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að fyrirtækið hefur innkallað ákveðnar súkkulaðitertur þar sem aðskotahlutur (glerbrot) fannst í einni tertu.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Myllu súkkulaðiterta 2 hæða (vnr 2058, strikamerki 5690568020586)
Myllu súkkulaðiterta 3 hæða (vnr 2059, strikamerki 5690568020593)
Bónus súkkulaðiterta 3 hæða (vnr 2013, strikamerki 5690568020135)
Bónus Mömmudraumur (vnr 2014, strikamerki 5690568020142)
Krónu súkkulaðitertu 2 hæða (vnr 2054, strikamerki 5690568020548)
Krónu súkkulaðitertu 3 hæða (vnr 9528, strikamerki 5690568095287)
Súkkulaðiterta Hagkaup 3 hæða (vnr 9535, strikamerki 5690568095355)
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar til og með 29.11.2016.
Dreifing: Verslanir Bónuss, Kaupáss (Krónan, Kjarval), Samkaupa (Nettó, Strax, Úrval) og Hagkaupa um allt land, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki og Varmahlíð, Kostur, Þín verslun, 10-11 Austurstræti, Iceland Engihjalla, Hlíðarkaup, Kauptún – kökur.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar er bent á að hægt er að skila þeim til þeirrar verslunar þar sem þær voru keyptar eða til Myllunnar, Skeifunni 19 milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðadeild Myllunnar í síma 510 2356 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gaedastjori@myllan.is.