Móðurmál fær viðurkenningu Heimilis og skóla

Skóli og frístund

""
Móðurmál, samtök um tvítyngi, hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2016 fyrir móðurmálskennslu.
 
 
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra - voru veitt í 21. sinn  við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu 10. maí og afhenti Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra viðurkenninguna.  
 
Móðurmál Samtökin voru formlega stofnuð árið 2001, en hafa boðið upp á móðurmálskennslu allt frá árinu 1994. Þessi kennsla hefur farið fram í Reykjavík, m.a. í Fellaskóla,  en í vetur hafa samtökin einnig skipulagt móðurmálskennslu á Suðurnesjum.
 
Í rökstuðningi vegna verðlauna Heimilis og skóla segir m.a. „Það verður ómetanlegt fyrir lítið málsamfélag eins og Ísland að hér muni vaxi upp kynslóð ungs fólks sem kann mörg tungumál, ungt fólk sem á sér mörg móðurmál“.
 
Meginmarkmið Móðurmáls-samtakanna er að gefa börnum tækifæri til að læra og viðhalda eigin móðurmáli og koma fræðslu til foreldra, skóla og almennings. Innan samtakanna starfar fjöldi einstaklinga sem eru tilbúnir að leggja á sig ómælda sjálfboðavinnu til að halda úti tungumálakennslu fyrir börn sín og annarra.