Veitt var úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsens í 30 sinn við hátíðlega athöfn í Höfða, mánudaginn 1. febrúar. Skákfélagið Hrókurinn fékk þá styrk úr sjóðnum upp á 350 þúsund krónur.
Það var Hrafn Jökulsson, stofnandi og formaður Hróksins sem tók við styrknum frá Degi B. Eggertssyni borgarstjóra í Reykjavík en borgarstjóri tilnefnir árlega styrkþega sjóðsins.
Skákfélagið Hrókurinn hefur um árabil unnið mikið og ötult starf við að efla skákíþróttina hérlendis og erlendis og hefur m.a. heimsótt alla grunnskóla á landinu til að kynna skákíþróttina.
Þá standa Hróksmenn fyrir vikulegum heimsóknum í Vin, athvarfi Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir og á Barnaspítala Hringsins.
Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Þau voru bæði viðstödd athöfnina í gær.
Tilgangur sjóðsins er að veita styrk til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála.
Gunnar Thorodssen var borgarstjóri í Reykjavík í tólf ár – frá árinu 1947 til ársins 1959 og alþingismaður um árabil, ráðherra og loks forsætisráðherra.