Mikill fjöldi á Þrettándahátíð Vesturbæjar

Umhverfi Íþróttir og útivist

""
Það var mikill fjöldi saman kominn á Þrettándahátíð Vesturbæjar sl. laugardag. Eftir að hafa þurft að fresta hátíðinni um þrjá daga virtist það ekki hafa áhrif á fólk, þar sem það hefur sennilega aldrei verið eins vel mætt á brennu á þessum tíma. Það spilar klárlega inní að veðrið var frábært og jafnframt var þetta á laugardagskvöldi. Líkt og undanfarin ár var byrjað með fjöldasöng við KR undir stjórn Bjössa greifa, þar á eftir var gengið að brennunni við Ægisíðu. Eftir að búið var að kveikja í brennunni tók við flott flugeldasýning, en það voru KR flugeldar sem sáu um það.  Svo naut fólk þess að vera saman við brennuna og líkt og undanfarin ár var mikið af erlendum gestum á svæðinu sem er bara alveg frábært.
 
Foreldrafélög grunnskóla Vesturbæjar og Þjónustumiðstöð Vesturbæjar þakka kærlega fyrir skemmtilegt kvöld og einnig langar okkur að þakka þeim aðilum sem styrktu þessa hátíð með einum eða örðum hætti. Frístundamiðstöðin Frostaskjól og KR fá einnig miklar þakkir fyrir hjálpina.