Alls sóttu 69.000 ferðamenn sér þjónustu í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík (UMFR) í Aðalstræti í júlí og hafa ekki verið fleiri í einum mánuði frá stofnun árið 1987. Flestir komu þann 30. júlí eða 2.700 manns.
69.000 ferðamenn sóttu sér þjónustu í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík (UMFR) í Aðalstræti í júlí og hafa ekki verið fleiri í einum mánuði frá stofnun árið 1987. Flestir komu þann 30. júlí eða 2.700 manns. Gestum UMFR hefur fjölgað um þriðjung á fyrstu sjö mánuðum ársins og eru nú orðnir tæplega 278.000. Mest varð aukningin í janúar þegar 66% fleiri ferðamenn komu í miðstöðina en í sama mánuði á síðasta ári.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna er sá staður í Reykjavík þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu og margir ákveða í framhaldinu hvernig Íslandsheimsókninni verði best varið. Ferðamenn fá þar hlutlausar upplýsingar um ferðamöguleika, menningu, afþreyingu og þjónustu á landsvísu.
UMFR gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki þegar kemur að öryggi ferðamanna og tryggir að nýjustu upplýsingar séu aðgengilegar ferðamönnum hverju sinni. Miðstöðin hefur átt í árangursríku samstarfi við Safe Travel sem er rekið af Landsbjörgu.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna spilar stórt hlutverk í samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu undir merkjum Reykjavík loves. Markmið samstarfsins er að kynna ný svæði fyrir ferðamönnum og minnka álag á viðkvæma staði í borgarlandinu. Með því að dreifa ferðamönnum nýtist afþreying og þjónusta á svæðinu í heild.

Hlutverk UMFR er jafnframt að auðvelda hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu að koma vöru og þjónustu sinni á framfæri við ferðamenn. Miðstöðin hefur átt í samstarfi við Iceland Travel Assistance – ITA frá árinu 2005 um bókun og sölu á ferðum og afþreyingu.
Höfuðborgarstofa rekur Upplýsingamiðstöð ferðamanna með fjármagni frá Reykjavíkurborg og Ferðamálastofu og þar starfa 30 manns. UMFR er opin alla daga ársins frá kl. 8-20 fyrir utan jóladag. UMFR hefur verið í Aðalstræti 2 frá árinu 2003 en í haust flytur starfsemin í Ráðhús Reykjavíkur.