Metaðsókn á Menningarnótt

Mannlíf Menning og listir

""
Metsaðsókn var á tuttugustu og fyrstu Menningarnótt Reykjavíkur sem lauk með glæsilegri flugeldasýningu undir stjórn Hjálpasveitar skáta.  Talið er að vel á annað hundrað þúsund manns hafi skemmt sér í miðborg Reykjavíkur yfir daginn og fram á kvöld í afar fallegu veðri. 
Hátíðarsvæðið var aftur stækkað í ár og náði alla leið út á Granda sem gafst vel, þá voru  viðburðir í Hljómskálagarðinum frá morgni til kvölds, en alls voru hátt í 300 fjölbreyttir viðburðir á dagskrá Menningarnætur víða um miðborgina.


Lögregla segir að aðsókn hafi verið afar jöfn og þétt frá hádegi og í allt kvöld. Þá gekk umferð greiðlega frá miðborginni strax eftir flugeldasýninguna. Stemningin hafi verið afar góð í allan dag og greinilegt að fólk hafi kunnað vel að meta að geta gengið um götur miðborgarinnar á þessum degi án þess að þurfa að hafa áhyggjur af bílaumferð.
 
Áshildur Bragadóttir forstöðukona Höfuðborgarstofu sagði eftir flugeldasýninguna nú rétt áðan:

„Mig langar fyrir hönd stjórnar Menningarnætur að þakka öllum gestum hátíðarinnar, viðburðarhöldurum, rekstaraðilum, íbúum í miðborginni, lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, öryggisaðilum og Strætó  innilega fyrir einstaklega vel heppnaða Menningarnótt. Mörg hundruð manns lögðu hönd á plóg til að gera hátíðina sem glæsilegasta og það tókst svo sannarlega. Það var einstaklega góð stemning í miðborg Reykjavíkur þar sem allir lögðust á eitt við að gera daginn sem ánægjulegastan. Á annað hundrað þúsund manns naut þeirrar fjölbreyttu dagskrár sem var í boði, samgöngurnar gengu vel og allir voru sér og sínum til sóma.“
 
Reykjavíkurborg og stjórn Menningarnætur þakkar borgarbúum og gestum Menningarnætur fyrir samveruna.