Menningararfurinn í brennidepli

Umhverfi Skipulagsmál

""
Borgin stendur fyrir umræðufundi um menningararfinn á Kjarvalsstöðum 15. mars klukkan 20:00. Allir velkomnir.
Hvað og hvernig á að vernda og hvers vegna? Hvernig er menningararfurinn notaður, af hverjum og til hvers? Hvernig sköpum við fortíðina? Hvaða áhrif hefur verndun á framtíðina?  Hvers vegna og fyrir hverja viljum við varðveita gömul hús? Hvernig má greina staðaranda i skipulagsgerð á forsendum minjaverndar? Hvernig takast menningararfurinn og tíðarandinn á?


Menningararfur – verndarstefna og skipulagsmál verða í brennidepli á fundi sem umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir á Kjarvalsstöðum, þriðjudaginn 15. klukkan 20. Fundurinn er í röðinni, Borgin, heimkynni okkar, en markmiðið er að færa umræðu um skipulags- og umhverfismál í vítt og breitt samhengi. Fundirnir hafa verið mjög vel sóttir, bæði af fagfólki og áhugafólki um skipulag og umhverfi borgarinnar. Rætt er á mannamáli út frá skemmtilegum sjónarhornum um brýn efni. Þetta er annar fundurinn á þessu misseri 2016. Í febrúar var fjallað um loftslagsmál.

Menningararfurinn

Frummælendur eru Hjálmari Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, Sigríður Björk Jónsdóttir byggingalistfræðingur, Ólafur Rastrick lektor í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt. Þau munu flytja örstutt erindi og ræða síðan saman um efnið. Eftir það verður opnað fyrir almennar umræður. 


Þetta er tíundi fundurinn í fundarröð sviðsins en fyrri fundir eru:  Hver á borgina? Er borgin heilsusamleg? Á að sameina sveitarfé lögin á höfuðborgarsvæðinu? Hver eru áhrif borgarumhverfis á hamingjuna?  Hvaða máli skiptir náttúran í borgarumhverfi?  Fyrir hverja er miðborgin? Vinsamleg borg fyrir börn og unglinga. Er miðborgin fyrir ferðamenn, íbúa eða alla? Loftslagsmál – hvað getum við gert? Hægt er að horfa á nokkra af fundunum á vefsvæðinu netsamfelag.is .



Velkomin, kaffi á könnunni og stemning í kaffihúsinu þar sem fundurinn fer fram á Kjarvalsstöðum.
 
Tenglar