Nemendur, starfsfólk og foreldrar barna í Melaskóla fögnuðu 70 ára afmæli skólans í dag.
Hátíðarhöldin hófust með morgunsöng og samveru en síðdegis var opið hús í skólanum fyrir foreldra og aðra gesti. Mikið var um dýrðir; skólahljómsveit Vesturbæjar lék, skólastjóri ávarpaði gesti og nýtt merki Melaskóla var afhjúpað. Höfundur þess er Maron Fannar Aðalsteinsson nemandi í 8. bekk. Þá var gestum boðið upp á kökur og kaffi og víða í skólanum voru uppákomur og í nýbyggingunni var leikið á harmónikku. Á göngum og í skólastofum hanga verk skólabarna og í skólastofum mátti skoða ýmis verkefni þeirra og myndbönd.
Óhætt er að segja að Melaskóli sé sjötugur orðinn rótgróinn skóli, vandað var mjög til verka þegar hann var reistur á fimmta áratug síðustu aldar, en arkitekt var Einar Sveinsson. Viðbygging við skólann var svo tekin í notkun 1999. Skólann prýða listaverk eftir Barböru Árnason og Ásmund Sveinsson.
Skólastjóri í Melaskóla er Björgvin Þór Þórhalssson. Hann lagði í ávarpi sínu áherslu á að skóli væri ekki bara hús heldur samfélag og velferð þeirra barna sem þar störfuðu og þroskuðust undir leiðsögn góðs starfsfólks.
Til hamingju Melaskóli með stórafmælið!