Í dag var gengið formlega frá samningum um Marshall húsið, en byggingin fær á haustmánuðum nýtt hlutverk þegar listamannarekin gallerí og vinnustofur listamanna opna þar. Marshall húsið er að Grandagarði 20, byggt 1948 sem síldarverksmiðja, sem að hluta til var fjármögnuð með Marshall aðstoð Bandaríkjanna.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifaði í dag vegna þessa verkefnis undir fimm samninga og setti í framhaldi upphafsstafi sína á 110 blaðsíður. Reykjavíkurborg tekur á leigu 2. – 4. hæð hússins af HB Granda til 15 ára og leigir síðan áfram til i8 Gallerí, Nýlistasafninu, Kling og Bang Gallerí, i8 Gallerí ehf. og Stúdíó Reykjavík, sem Ólafur Elíasson tengist. Á neðstu hæð hússins verður opnaður veitingastaður með sérstaka áherslu á sjávarfang, en það er ótengt samningum sem gengið var frá í dag.
Borgin bakhjarl menningarstarfsemi
„Það er mikið fagnaðarefni að samstarf hafi tekist um öfluga menningarstarfsemi í Marshall húsinu. HB Grandi mun ráðast í endurgerð hússins af myndarbrag þannig að húsið verður sannkölluð borgarprýði. Reykjavíkurborg kemur að málinu með því að leigutryggja verkefnið. Það sem skiptir þó mestu máli er að náðst hefur samstarf við þrjá framsækna og kraftmikla samstarfsaðila á myndlistarsviðinu sem áttu ákveðið frumkvæði að verkefninu. Það mun tryggja að Marshall húsið verður eitt mest spennandi myndlistar- og menningarhús borgarinnar og þó víðar væri leitað,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Hugmyndasmiðir þessa verkefnis eru Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason arkitektar hjá Kurt og Pí arkitektum.
Ánægjulegt að sjá líf færast í Marshall húsið á nýjan leik
Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda segir þetta samstarf marka tímamót. „Við í HB Granda erum mjög ánægð með þá uppbyggingu sem á sér stað í nærumhverfi okkar á Granda og það verður ánægjulegt að sjá líf færast í Marshall húsið á nýjan leik. Við hlökkum til að hefja þær miklu framkvæmdir sem framundan eru og munum gera okkar besta til að sníða innviði að því starfi sem þar mun fara fram. Það fer vel á því að starfsemi HB Granda í Reykjavík sé á milli listaverksins Þúfu eftir listakonuna Ólöfu Nordal sem HB Grandi reisti og fyrirhugaðrar listamiðstöðvar í húsnæði félagsins.“
Nýló, Kling og bang, i8 og Ólafur
Listamannahóparnir sem flytja munu inn í Marshall húsið eru öflugir.
Nýlistasafnið eða Nýló, var stofnað árið 1978 af hópi 27 myndlistarmanna, en kjarni þeirra hafði áður starfað innan SÚM hópsins. Nýló er listamannarekið sýningarrými og safn, vettvangur uppákoma, umræðna og gjörninga. Nýló hefur lengi verið miðstöð nýrra strauma og tilrauna í íslenskri og erlendri myndlist og hafa margar sýningar í Nýló markað tímamót í íslenskri listasögu. Ár hvert stendur Nýló fyrir öflugri sýningadagskrá auk þess að safna og varðveita listaverk og heimildum sem tengjast frumkvöðlastarfi innan íslenskrar myndlistar.
Kling & Bang gallerí var stofnað af tíu myndlistarmönnum í byrjun árs 2003 og hefur allar götur síðan verið listamannarekið gallerí (non profit). Stefna Kling & Bang er að sýna myndlist sem ögrar samhengi og innihaldi skapandi hugsunar. Það hefur vakið heimsathygli fyrir starfsemi sína og sýningar. Kling & Bang hefur alla tíð lagt áherslu á að bjóða upp á vettvang fyrir framúrskarandi sýningar og tilraunamennsku, jafnt með sýningum upprennandi listamanna og vel þekktra, hérlendra sem erlendra.
Ólafur Elíasson er sá íslenski myndlistarmaður sem lengst hefur náð í listheiminum. Verk hans eru í eigu helstu listasafna heims og hafa sýningar hans gríðarlegt aðdráttarafl. Uppspretta hugmynda Ólafs er ósjaldan náttúra Íslands, og sú birta og litir sem hér er að finna. Ólafur er með vinnustofur í Berlín og Kaupmannahöfn, en hyggst nú líka vera með aðstöðu hér ásamt sýningarrými fyrir sérstök verk.
Sögulegt hús
Árið 1948 stofnuðu Reykjavíkurbær og hlutafélagið Kveldúlfur með sér sameignarfélagið Faxa sf. um byggingu nýrrar síldarverksmiðju í Örfirisey. Bygging verksmiðjunnar hófst árið 1948 og var að hluta fjármögnuð með Marshall aðstoð Bandaríkjanna eftir stríð og er nafn hússins því þaðan komið. Verksmiðjan var í notkun í um hálfa öld en hefur staðið auð undanfarin ár.