Mannréttindavika í Frostaskjóli

Skóli og frístund

""
Síðasta vika var helguð mannréttindafræðslu í frístundamiðstöðinni Frostaskjóli. Mikið fjör var þessa daga og augljóst að börnin höfðu áhuga á að fræðast um réttindi sín.
Á undanförnum árum hafa frístundaheimilin í Vesturbænum helgað eina viku í febrúar fræðslu um mannréttindi, með áherslu á jöfnuð og lýðræði. Börnin hafa unnið mörg skemmtileg verkefni og farið í leiki tengda mannréttindum og samstarfi. Tjáningar- og mótmælaréttur barnanna er hafður að leiðarljósi í þessum verkefnum, með áherslu á að þau læri í gegnum upplifun og leik.


Mikið fjör var á hverju frístundaheimili í mannréttindavikunni. Börnin reyndu til dæmis að bjarga saman heilli þjóð með því að færa geislavirka flösku frá sprengjusvæði. Þá prófuðu þau að halda af stað í stríð þar sem eina lausnin á friði var að tala saman og hlusta hvert á annað.
 
Einræðisherrar frístundaheimilana létu einnig til sín taka einn daginn, en þá voru börnin svipt öllu vali og sett á svæði sem herranum hentaði. Uppi varð fótur og fit í barnahópnum og voru börnin því hvött til að mótmæla yfirvaldinu, sem sat fast á sínu og hafði engan áhuga á barnalýðræði.
 
Ljósmyndamaraþon, sögustundir, plakatagerð, söngur og margt annað einkenndi vikuna og var hún því sérlega vel heppnuð. Börnin tóku með sér gott vegarnesti inn framtíð lýðræðis og jöfnuðar og geta verið stolt af sínu framlagi til mannréttinda í heiminum.