Málþing á Kjarvalsstöðum um helgina

Mannlíf Menning og listir

""
Haldið verður málþing á Kjarvalsstöðum laugardaginn 2. apríl þar sem fjallað verður um listaverkasöfn og listaverkasafnara. Málþingið er haldið í tengslum við sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hugur og Heimur.






 
 
Á sýningunni Jóhannes Kjarval: Hugur og heimur má sjá hluta listaverkasafns Þorvaldar og Ingibjargar, eiginkonu hans, sem varðveitt er í Gerðarsafni.
 
Kári Finnsson, listfræðingur og blaðamaður Viðskiptablaðsins, fjallar um samspil opinberra safna og safnara hér heima og erlendis og hvernig landið liggur í listheiminum. Geirlaug Þorvaldsdóttir segir frá listaverkasöfnun föður síns, Þorvaldar Guðmundssonar, sem kenndur var við Síld og fisk. Listaverkasafnararnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Sverrir Kristinsson sitja fyrir svörum. 
 
Áhugavert málþing sem hefst  klukkan 15 á Kjarvalsstöðum laugardaginn 2. apríl.