Hjálpræðisherinn og lóðaúthlutun Reykjavíkurborgar til hans við Suðurlandsbraut hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarna daga.
Hjálpræðisherinn ákvað að eigin frumkvæði að selja Herkastalann í Kvosinni fyrir um 630 milljónir króna með aðstoð KPMG. Í aðdraganda þess hafði KMPG leitað eftir því við borgina að taka vel í umsókn Hjálpræðishersins um lóð við Suðurlandsbraut. Aðeins nýlega var Hjálpræðisherinn skráð sem trúfélag á Íslandi en hefur þó starfað að líknarmálum til fjölda ára í Reykjavík.
Lagaskylda sveitarfélags til að úthluta trúfélagi lóð án endurgjalds er bundin við þjóðkirkjuna. Reykjavíkurborg hefur jafnframt, umfram lagaskyldu og í því skyni að gæta jafnræðis, úthlutað lóðum án endurgjalds til annarra trúfélaga til að auðvelda þeim að reisa tilbeiðsluhús í Reykjavík og mæta þannig þörfum íbúa og annarra sem leið eiga um höfuðborg landsins og aðhyllast viðkomandi trúarbrögð.
Hjálpræðisherinn er rótgróin stofnun í Reykjavík sem þegar var með aðsetur í Kvosinni en hefur kosið að færa sig um set. Reykjavíkurborg greiddi fyrir þeim áformum með úthlutun umbeðinnar lóðar. Því gildir annað um þessa lóðaúthlutun en almennt þegar trúfélag er að festa sig í sessi með byggingu tilbeiðsluhúss.
Samstarf borgarinnar og Hjálpræðishersins hefur alltaf verið mikið. Til að mynda fær Herinn sjö milljónir króna frá borginni á þessu ári sem fara beint í tiltekin verkefni eins og súpueldhús, virkniúrræði og almennan stuðning við útigangsfólk.