Ljósmyndasamkeppni um hjálpsemi

Skóli og frístund Mannlíf

""
Barnamenningarhátíð og Neyðarlínan efna til ljósmyndakeppni meðal 12-15 ára barna og unglinga um gildi hjálpsemi.
Það gerist of oft að fólk hjálpar ekki þegar það kemur að slysi en lætur nægja að hringja í 112.


Barnamenningarhátíð og Neyðarlínan óska eftir sjónarhorni ungs fólks á þennan veruleika með því að bjóða 7. – 10. bekkingum til þátttöku í ljósmyndasamkeppni um hugtakið hjálpsemi. Sett verður upp sýning á þeim ljósmyndum sem berst í keppnina á Barnamenningarhátíð dagana 19.-24. apríl.
 
Hvernig tökum við þátt í keppninni?

1. Taka ljósmynd eða gera annars konar mynd sem endurspeglar hugtakið hjálpsemi. Myndin má vera ljósmynd, klippimynd, grafíkmynd, teiknuð eða unnin með blandaðri tækni.



2. Umfjöllunarefnið á að vera hjálpsemi og það þarf að skila myndinni inn í keppnina á instagram, myllumerktri #112hjalpsemi.

Hópur, bekkur, félagsmiðstöð eða vinir geta sent inn fleiri myndir en þá þarf að merkja allar myndirnar með nafni hópsins til viðbótar við #112hjálpsemi (t.d. #112hjalpsemi #10BÖlduselsskóli #7MLaugó). Hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 30. 
 
3. Myndin má vera af fólki, dýrum, tilfinningatjáningu, aðstæðum eða öðru og á að vera unnin út frá sjónarhorni ungs fólks á aldrinum 12–15 ára á hugtakið hjálpsemi.



4. Skilafrestur er til miðnættis fimmtudaginn 7. apríl. 



Valdar myndir verða sýndar á sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur á Barnamenningarhátíð 19.-24. apríl. Dómnefnd mun velja myndir á sýninguna og jafnframt bestu myndirnar sem verða verðlaunaðar. 


Verðlaun

1. Tveir miðar á Mamma mía í Borgarleikhúsinu og 10.000 króna inneign á Hamborgarafabrikkuna.

2. 10.000 króna inneignanóta á Dunkin Donuts

3. 7.000 króna inneignanóta á YoYo ís
 
Sá bekkur/hópur sem skilar inn myndum frá flestum einstaklingum fær YoYo ís fyrir allan hópinn /bekkinn. Athugið að myllumerkja með nafni hóps þær myndir sem eru með í hópsamkeppninni.