Liðsauki hjá Menningar- og ferðamálasviði

Menning og listir Atvinnumál

""
Huld Ingimarsdóttir, MBA, er nýr skrifstofustjóri rekstrar og mannauðsmála hjá Menningar- og ferðamálasviði.
Huld uppfyllir mjög vel allar hæfniskröfur sem gerðar voru í starfsauglýsingu svo sem vegna þekkingar og reynslu hennar af fjármálastjórnun, fjármálagreiningum, rekstri, samningagerð, verkefnastjórnun og mannauðsmálum. 


Huld hefur farsælan feril að baki, en hún starfaði sem fjárreiðustjóri Toyota á Íslandi í tíu ár og síðastliðin 15 ár á vettvangi alþjóðastofnana, bæði hjá Alþjóða Rauða krossinum og Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna, þar sem hún hafði yfirumsjón með fjármálalegum rekstri og skipulagningu umfangsmikilla verkefna og skrifstofa erlendis.


Huld tók við af Berglindi Ólafsdóttur fráfarandi skrifstofustjóra sem lét af störfum 31. janúar nk. eftir tæplega 11 ára farsælan feril.