Lesið til sigurs í Miðborg, Vesturbæ og Hlíðum

Skóli og frístund

""
Úrslit í Stóru upplestrarkeppninni fyrir Miðborg, Hlíðar og Vesturbæ réðust í Tjarnarsal Ráðhússins í gær.
Fjórtán nemendur í 7. bekk í sex grunnskólum kepptu til úrslita í upplestrarkeppninni; Austurbæjarskóla, Grandaskóla, Háteigsskóla, Landakotsskóla, Melaskóla, Hlíðaskóla og Vesturbæjarskóla. Nemendur lásu upp úr verkum Guðmundar Böðvarssonar og Bryndísar Björgvinsdóttur og kvað fjögurra manna dómnefnd upp úr með úrslitin.  

 
Lóa Floríansdóttir,nemandi í Melaskóla, varð í fyrsta særi og Flóki Nikulásson úr Melaskóla varð í 2. sæti og Melkorka Ýr Bustos í Austurbæjarskóla lenti í 3. sæti. Þeim er hér með óskað innilega til hamingju með frábæran árangur.
 
Við athöfnina fluttu nemendur úr 6. bekk í Austurbæjarskóla tónlistaratriði undir stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar. Lögin voru bæði íslensk, Karl sat undir kletti eftir Jórunni Viðar og Heillandi vor eftir Óðinn G. Þórarinsson. Bæði lögin voru sérstaklega útsett fyrir raddir og ýmis hljóðfæri fyrir þessa dagskrá og með þennan hóp ungra flytjenda í huga.