Leikur til að gefa börnum rödd – ráðstefna fyrir starfsfólk leikskólanna
Skóli og frístund
Rúmlega 600 starfsmenn leikskóla borgarinnar hafa skráð sig á ráðstefnuna Gerðu og ég sé – segðu og ég heyri! sem haldin verður fimmtudaginn 4. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica.
Á ráðstefnunni verður leitað svara við spurningunn; Hvernig nýtum við leikinn til að gefa öllum börnum rödd?
Meðal fyrirlesara er dr, Hrönn Pálmadóttir lektor við HÍ sem fjalla mun um tjáningu og merkingarsköpun barna í leik. Jóhanna Kristín Jónsdóttir verkefnastjóri í leikskólanum Geislabaugi ætlar að segja frá þróunarverkefni um jafnrétti kynja og Fríða Bjarney Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá skóla- og frístundasviði, mun halda erindi sem hún nefnir Þátttakandi eða áhorfandi? – leikur, tjáning og samskipti í fölbreyttum hópi barna og foreldra.
Þá mun Aðalheiður Stefánsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í Reynisholti, halda erindi um gildi lesturs í leikskólanum auk þess sem sýnd verða myndbönd úr starfi leikskóla.

Ráðstefnustjóri er Inga Dóra Jónsdóttir.