Leikskólastjórar afhenda borgarstjóra ályktun

Skóli og frístund

""
Leikskólastjórar hjá Reykjavíkurborg komu á skrifstofu borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og mótmæltu hagræðingu í fjármálum leikskólanna.  
Í ályktun leikskólastjóra segir m.a.:" Við leikskólastjórnendur í Reykjavík mótmælum niðurskurði í leikskólum Reykjavíkur og sjáum engar leiðir til að taka á okkur halla frá síðasta ári, eins og ætlast er til."
Þá er í ályktuninni skorað á borgaryfirvöld að endurskoða fjárveitingar til leikskóla með tilliti til betri afkomu borgarinnar á þessu ári.