Skóla- og frístundaráð ákvað á fundi sínum í dag að sameina tvo leikskóla í Vesturbæ undir eina stjórn, leikskólann Mýri í litla Skerjafirði og Hagaborg.
Sameining leikskólanna kemur til framkvæmda 1. september og er hugsuð sem tímabundin lausn til eins árs. Unnið verður í nánu samstarfi við foreldra og starfsfólk að þessum breytingum.
Í greinargerð segir m.a. að fyrirséð sé að einungis 27 börn verði á leikskólanum Mýri næsta haust, en þar sé húsrými fyrir 47 börn. Þá séu báðir stjórnendur skólans að hætta störfum á næstu mánuðum. Skóla- og frístundasvið mat það svo að hætta ætti rekstri Mýrar af þesssum sökum, en foreldrar og starfsfólk óskuðu eftir því að starfsemi leikskólans yrði óbreytt í eitt ár með því fyrirkomulagi að leikskólastjóri í nágrannaleikskóla tæki við stjórn skólans. Því varð að niðurstöðu að leikskólarnir verði sameinaðir og hafa foreldraráð og starfsfólk beggja leikskóla fallist á þá lausn.
Leikskólarnir Mýri og Hagaborg eru nærri hvor öðrum og hugmyndafræði og starfsaðferðir þeirra eru um margt áþekkar. Ólafur Börkur Bjarkasonar, leikskólastjóri í Hagaborg, mun stýra sameinuðum leikskóla.
Ákvörðun skóla- og frístundaráðs fer til borgarráðs til endanlegrar samþykktar.