Leikskólabörn í heillandi heimi leikhússins

Skóli og frístund Mannlíf

""

Elstu börnin af nokkrum leikskólum í borginni nutu brúðuleikhúss í dag ásamt borgarstjóra, en Þjóðleikhúsið býður á upp á sögustund til að kynna börnum heillandi heim leikhússins.  

Á hverju hausti býður Þjóðleikhúsið börnum í elstu deildum leikskólanna í heimsókn í svokallaða Sögustund og vekja þær jafnan mikla gleði. Markmiðið er að kynna börnum töfraheim leikhússins, örva þroska og efla hæfileika til að skilja og takast tilfinningar og tilveruna. Í morgun fékk Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að njóta sýningar með börnunum en brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik sýndi þeim verk sitt Umbreytingar sem eru nokkrar stuttar sögur með brúðum af ýmsu tagi. 

Þetta er áttunda árið í röð sem Þjóðleikhúsið býður upp á þessar skemmtilegu heimsóknir og innsýn í ævintýrin á leiksviðinu.