Laugarnesskóli áttræður í heila viku

Skóli og frístund

""
Í þessari viku eru nemendur í Laugarnesskóla í þemavinnu sem tengist sögu skólans og gamla timanum. Vinnan er liður í afmælishátíð skólans sem fagnar 80 ára starfsafmæli. 
Það verður líf og fjör í Laugnarnesskóla alla vikuna í tilefni afmælisins og jafnframt verða nemendur að undirbúa mikla hátíð laugardaginn 28. maí þegar gleðin nær hámarki. Í vikunni verður m.a. unnið að því að gera sameiginlegt mósaíklistaverk, innrétta skólastofu í gömlum stíl og nemendur læra gamalt handverk og leiki.
 
Afmælishátíðin laugardaginn 28. maí hefst svo kl. 13.00 og stendur fram til kl. 16.00. Skólinn verður opinn gestum og gangandi og verður mikið um dýrðir á skólalóðinni og í skólanum. 
 
Af þeim fjölmörgu dagskrárliðum sem í boði verða má nefna morgunsöng, stuttmyndasýningu, fimleikasýningu og lúðrablástur. Þá verða gamlir munir og gamlar myndir til sýnis. Börn og fullorðin fá meðal annars að spreyta sig í sirkuslistinni, bogfimi og skylmingum.
 
Skólablöð frá árinu 1945 til dagsins í dag með efni eftir nemendur verða til sölu í fjáröflunarskyni fyrir skólasel skólans.
 
Á opnu húsi verður rekið kaffihús og seldar grillaðar pylsur. 
 
Allir hjartanlega velkomnir og sérstaklega íbúar hverfisins, fyrrum nemendur og fyrrum starfsfólk skólans.
 
Hægt er ð fylgjast með framgangi þemavikunnar og hátíðinni á Facebókarsíðu hennar.