Laufskálar fagna 20 ára afmæli

Skóli og frístund

""
Hátíð var í leikskólanum Laufskálum í Grafarvogi þegar tvítugsafmæli leikskólans var fagnað með leiksýningu og veisluhöldum. 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri eða borgarsnjóri eins og börnin sögðu heimsótti Laufskála í tilefni þessara tímamóta og færði börnum og starfsfólki blóm. 



Laufskálar hafa markað sér sérstöðu með leiklistarstarfi og m.a. fengið hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið leikskólastarf. Starfsfólkið flutti í tilefni stórafmælisins í dag frumlegt leikrit um Rauðhettu í Grafarvogi sem send er til ömmu sinnar með hleðslutæki í i-padinn hennar. Rebbi nappar hins vegar yfir þessu mikilvæga nútímatæki og upphefst þá spennandi saga.



Að lokinni leiksýningu fengu allir gestirnir; börn, foreldrar og systkini ljúffengar afmæliskökur. 
 
Leikskólastjóri í Laufskálum er Halldóra Lilja Jónsdóttir. 
 
Til hamingju Laufskálar með 20 ára afmælið!