Lesskimun í 2. bekk grunnskóla Reykjavíkur sýnir að 66% nemenda í 2. bekk geta lesið sér til gagns.
Hlutfall þeirra sem lesa sér til gagns hækkar um 2% frá fyrra ári en er þó svipað og árin á undan. Hlutfall stúlkna sem geta lesið sér til gagns er 68% en drengja 65%.
Fylgni er í ár á milli jákvæðara viðhorfs til lesturs og betri árangurs í lesskimun og hafa stúlkurnar jákvæðari viðhorf til lesturs en drengirnir.
Markmiðið með skimuninni er fyrst og fremst að finna þá nemendur sem þurfa sérstakan stuðning eða sérkennslu í lestri og er hvati til að leita fjölbreyttra leiða í kennslu.
Fylgjast þarf vel með lestrarkunnáttu nemenda milli ára og leggja áherslu á einstaklingsáætlun fyrir hvern og einn nemanda. Lestur er grundvallarfærni sem getur haft úrslitaáhrif á allt nám og framtíð nemandans.