Reykjavíkurborg stendur fyrir kynningarfundi á frummatsskýrslu um landfyllingu í Elliðaárvogi 19. maí kl. 17-19 í hverfisbækistöð Reykjavíkurborgar að Stórhöfða 9.
Reykjavíkurborg hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um landfyllingu í Elliðaárvogi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 11. maí til 23. júní 2016 á eftirtöldum stöðum: Í Menningarhúsi Grófinni, Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. júní 2016 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Reykjavíkurborg mun standa fyrir kynningarfundi á frummatsskýrslu þann 19. maí 2016 kl. 17:00 til 19:00 í hverfisbækistöð Reykjavíkurborgar að Stórhöfða 9 og eru allir velkomnir.
Tenglar