Kvöldgöngur í Reykjavík sumarið 2016

Menning og listir Mannlíf

""
Að venju bjóða Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur upp á kvöldgöngur með leiðsögn sumarið 2016. Lagt er af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17, nema annað sé tekið fram.
 
 
Göngurnar eru með fjölbreyttu sniðu og má þar nefna göngu um útilistaverk í kringum Tjörnina, hinsegin bókmenntagöngu og syngjandi sagnfræðilega afmælisgöngu í tilefni af 230 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Frekari upplýsingar má finna á Facebook síðu Kvöldgangna facebook.com/kvoldgongur og á dagskrána á síðu Borgarbókasafnsins.
Athugið einnig göngur um Viðey valda sunnudaga í sumar kl. 13:30. Siglt er frá Skarfabakka samkvæmt áætlunarsiglingu. Sjá nánar á borgarsogusafn.is.
 
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.