Átta grunnskólar í Reykjavík keppa til úrslita í beinni sjónvarpsútsendingu í Skrekki, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík, í kvöld. Úrslitin fara fram í Borgarleikhúsinu og hefst bein útsending frá keppninni í RÚV kl. 20.00.
Þeir átta skólar sem keppa til úrslita eru Austurbæjarskóli, Árbæjarskóli, Hagaskóli, Hlíðaskóli, Ingunnarskóli, Réttarholtsskóli, Seljaskóli og Ölduselsskóli. Öll atriðin eru frumsamin og flutt af unglingum í þessum skólum sem jafnframt sinna öllum helstu verkum við uppfærsluna, s.s. gerð sviðsmyndar, sminki, hárgreiðslu, lýsingu og hljóðvinnslu. Á þriðja hundrað unglingar taka þátt í úrslitakeppninni í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Mikil spenna ríkir fyrir úrslitakeppnina enda er Skrekkur einn af hápunktum lifandi og skemmtilegrar unglingamenningar þar sem margir stíga sín fyrstu spor á listabrautinni. Hægt er að kynna sér atriðin sem keppa til úrslita á www.krakkaruv.is
Alls tóku 24 grunnskólar þátt í Skrekk að þessu sinni eða rösklega sex hundruð unglingar.