ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Eitt hundrað unglingar úr félagsmiðstöðinni Frosta eru nýkomnir heim úr velheppnaðri skíðaferð til Akureyrar.
Einn af hápunktum vetrardagskrár frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls er hin árlega skíðaferð unglinganna í félagsmiðstöðinni Frosta. Að þessu sinni var stefnan tekin á Akureyri helgina 29. – 31.janúar. Gríðarlegur áhugi var fyrir ferðinni í ár og fór skráning fram úr björtustu vonum. Alls fóru 110 manns með í ferðina, 101 unglingur og 9 starfmenn, og var þetta fjölmennasta ferðin til þessa.
Strax í upphafi hófst skemmtilegur leikur sem fólst í því að unglingunum var skipt í smærri hópa þar sem þau unnu saman sem lið og leystu í sameiningu alls kyns þrautir. Hver hópur fékk afhent eitt egg sem þau áttu að passa upp á í ferðinni. Þau gáfu egginu nafn, stofnuðu instagram-síðu fyrir eggið og söfnuðu stigum með þrautum tengdum egginu sínu. Gist var í Glerárskóla þar sem hver hópur fékk sína heimastofu. Unglingarnir skemmtu sér á skíðum og snjóbretti í Hlíðarfjalli, skelltu sér út að borða og áttu svo góða stund saman á kvöldvöku á laugardagskvöldinu. Eftir annan góðan dag í fjallinu á sunnudeginum lögðu sáttir og sælir unglingar af stað heim á leið eftir skemmtilega og viðburðaríka helgi.
Hópurinn var til fyrirmyndar hvert sem farið var og er starfsfólk Frosta stolt af þeim og er strax byrjað að hlakka til næstu ferðar.