Komum flugeldaleifum á endurvinnslustöðvar

Umhverfi Mannlíf

""
Flugeldaleifar eru víða um borgina og eru íbúar og gestir hvattir til að hirða þær upp og koma á endurvinnslustöðvar svo þær grotni ekki niður þar sem skotið var upp í görðum, á götum eða opnum svæðum.
Megnið af flugeldaleifunum er plast, pappi, tré og leir. Reykjavíkurborg hefur hvatt íbúa til þess að koma þessum leifum á endurvinnslustöðvar. Ákveðin hætta getur stafað af ósprungnum skoteldum sem gætu valdið slysum í öflugum pressum sorpbílanna og því er ekki talið æskilegt að skoteldaleifar séu settar í almennt rusl.  Ósprungnir skoteldar eiga tvímælalaust að fara í spilliefnagáma á endurvinnslustöðvum Sorpu. 
 
Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar hafa hreinsað upp við Hallgrímskirkju, á Landakotstúni og fleiri stöðum, en biðla til íbúa að taka ruslið í húsagötum og annars staðar þar sem skotið var upp og koma því til endurvinnslustöðva Sorpu.
 

Nánari upplýsingar:

Þjónusta Sorpu