Kennarar í Reykjavík gengu á fund borgarstjóra í dag og afhentu honum ályktun vegna stöðunnar í kjaramálum þeirra.
Í ályktuninni sem er stíluð til allra sveitarfélaga í landinu segir m.a. :
- Við, grunnskólakennarar á Íslandi, krefjumst þess að sveitarfélögin á landinu bregðist án tafar við því alvarlega ástandi sem skapast hefur í skólakerfinu vegna hættulegra og rangra áherslna í kjarastefnu sveitarfélaga gagnvart grunnskólakennurum. Laun kennara eru of lág og valda því með öðru að grunnskólakerfið er ekki lengur sjálfbært. Þeir kennarar sem nú starfa í grunnskólunum njóta mun verri kjara en samanburðarhópar og raunar töluvert lægri kjara en almennt tíðkast á landinu. Nú eru samningar okkar lausir og hafa verið lengi. Mánuðum saman hafa sveitarfélögin haft tíma og tækifæri til að bregðast við bráðum vanda. Ekkert bólar á viðbrögðum og samninganefnd sveitarfélaga virðist enn ekki hafa umboð til neins nema að endurtaka leikinn frá því í sumar og bjóða áfram óboðleg kjör. -
Þá segir í ályktuninni að kennarar hafi tvo kosti. Að yfirgefa skólana og afhjúpa þannig endanlega þá skammsýni og hyskni sem einkennir störf sveitarfélaga á þessu sviði – eða stíga fram, draga sveitarfélögin til ábyrgðar fyrir stöðunni sem upp er kominn og krefjast viðbragða.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók við ályktuninni og þakkaði kennurum fyrir að koma á sinn fund. Hann sagðist hafa skilning á kröfugerð þeirra og bauð trúnaðarmönnum kennara upp á skrifstofu sína til að fara yfir stöðuna.