Kattarvali kominn í hóp jólavætta

Skóli og frístund

""

Tvær jólavættir opnuðu í dag jólaskóg í Ráðhúsinu. Leiðindaskjóða kynnti til sögunnar hálfbróður sinn Kattarval og eru þá jólavættir borgarinnar orðnar fjórtán.  

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók á móti jólavættunum tveimur og bauð leikskólabörn af Drafnarsteini velkomin í jólaskóginn. Þá greindi hann frá helstu viðburðum í borginni á aðventunni.

Kattarvali er einn af gömlu jólasveinunum, sonur Grýlu frá fyrra hjónabandi með tröllkarlinum Bola. Lítið fór fyrir Kattarvala frameftir öldum því hann dvaldist langdvölum í Finnmörku ásamt nokkrum bræðrum sínum. Þeir fóru um með ránshendi og óknyttum en það var bara vegna þess að þeir voru alltaf svangir og söknuðu mömmu sinnar. Á ferðum sínum tók hann ástfóstri við finnskættaða skógarketti. Í dag er hann nýkominn heim og er miklu rólegri en áður. Enda fær hann nú mesta útrás í að stíga nokkur dansspor. Hann er mikill dýravinur, er „vegan“ og elskar ketti af öllum stærðum og gerðum. Hann nýtir hvert tækifæri til að grípa þá upp á rófunni, sveifla þeim jafnvel svolítið — og auðvitað knúsa litlu skinnin í kaf. 

Nýju jólavættinni verður án efa tekið vel af öðrum fjölskyldumeðlimum þeim Grýlu, Leppalúða, Jólakettinum, Rauðhöfða, Leiðindaskjóðu, Stekkjastaur, Hurðaskelli, Gluggagægi, Skyrgám, Bjúgnakræki,  Stúf og tvíburunum Surtlu og Sighvati. Jólavættirnar birtast nú ein af annarri á húsveggjum víðsvegar um borgina þar sem þeim verður hampað. Samfara því fer af stað skemmtilegur fjölskylduleikur sem byggist á að finna vættirnar og svara léttum og skemmtilegum spurningum um þær. Hægt er að nálgast ratleikinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu og á Kjarvalsstöðum en á þessum stöðum er einnig hægt að sjá allar jólavættirnar á einum stað. Þá er hægt að nálgast leikinn á vefnum Jolaborgin.is. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem sigrar í leiknum en hægt er að skila svörum til Höfuðborgarstofu í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir 19. desember. 

Gunnar Karlsson myndlistarmaður hefur teiknað jólavættina og byggir á hugmynd Hafsteins Júlíussonar um að tengja íslenska sagnahefð við Jólaborgina Reykjavík. Jólavættir voru fyrst kynntar árið 2011 og gegna lykilhlutverki í að kynna sérstöðu Reykjavíkur sem jólaborgar fyrir innlendum og erlendum gestum. Meginmarkmiðið er að skapa áhrifaríka og skemmtilega jólaupplifun í borginni á einfaldan hátt í góðu samstarfi við fjölda samstarfsaðila víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.  Sjá skemmtilega dagskrá á aðventunni á Jolaborgin.is